Fyrsta bloggfærsla

Mér sýnist engin vera kona með konum nema að taka þátt í bloggæðinu um þessar myndir og hef því ákveðið að prófa moggabloggið eftir tveggja ára blogghlé.

Til þess að standa nú undir lýsingunni á sjálfri mér er rétt að þessi fyrsta færsla fjalli um konu í stjórnmálum í Evrópu. Las það nefnilega á visi.is að komin væri út bók í Frakklandi um Ségolene Royal forsetaframbjóðanda þar sem henni væri lýst sem frekri og sjálfselskri. Nú þegar kosningar nálgast óðfluga fjalla menn sumsé ekki lengur um hvað Ségolene er smart og fín. Las í DV síðustu helgar grein eftir Guðberg Bergsson (að mig minnir) um konur og stjórnmál. Þar var því skemmtilega lýst hvernig margir kvenkyns stjórnmálaleiðtogar hafa í fyrstu fengið fína meðferð í fjölmiðlum, verið mærðar fyrir huggulegheit og hvaðeina, en eftir því sem kosningar nálgast fara menn að tala þær niður bæði innan flokks sem utan. Hljómar þetta eitthvað kunnuglega ?


Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Þ. Sigmundsson

Velkomin í bloggheima á ný Dóra.   Sammála þér varðandi konur og stjórnmál, það er oft baunað á þær töluvert meira en karlana.  Öll spjót standa nú  á Ingibjörgu Sólrúnu í aðdraganda kosninga og árásirnar munu bara ágerast er nær dregur stóru stundinni í vor.  Það hentar nefnilega ekki sumum þegar bátnum er ruggað svona hressilega...

Sigfús Þ. Sigmundsson, 7.2.2007 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og átján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband